Nokia E51 - Vafrað á vefnum

background image

Vafrað á vefnum

Til að vafra um vefinn velurðu bókamerki eða slærð inn

veffang handvirkt og velur

Opna

. Aðeins skal nota

þjónustu sem er treyst og sem veitir nægilegt öryggi og

vörn gegn skaðlegum hugbúnaði.

Ábending: Þegar þú byrjar að slá inn veffangið

birtist listi með vefföngum þeirra síðna sem þú

hefur áður opnað og sem passa við það sem þú

hefur skrifað. Til að opna síðu flettirðu að henni og

ýtir á skruntakkann.

Til að færa þig um á vefsíðu notarðu skruntakkann, sem er

sýndur sem bendill á síðunni. Þegar þú færir bendilinn yfir

tengil breytist hann í hönd. Ýttu á skruntakkann til að opna

tengilinn. Á vefsíðum eru nýir tenglar vanalega

undirstrikaðir með bláu og tenglar sem áður hafa verið

skoðaðir með fjólubláu. Jaðar mynda sem gegna hlutverki

tengla er blár.
Vefföng þeirra síðna sem þú opnar eru vistuð í

Sjálfv.

bókamerki

möppunni.