Öryggi tenginga
Ef öryggisvísirinn ( ) birtist á skjánum meðan tenging er
virk eru gagnasendingar milli tækisins og
internetgáttarinnar eða miðlarans dulkóðaðar.
Öryggistáknið sýnir ekki að gagnasendingin milli
gáttarinnar og efnisþjónsins (eða staðarins þar sem
umbeðin tilföng eru geymd) sé örugg. Þjónustuveitan
tryggir gagnasendinguna milli gáttarinnar og
efnisþjónsins.
Öryggisvottorð geta verið nauðsynleg fyrir tiltekna
þjónustu, t.d. bankaþjónustu. Látið er vita ef uppruni
miðlarans er ekki staðfestur eða ef tækið inniheldur ekki
er rétt öryggisvottorð. Nánari upplýsingar fást hjá
þjónustuveitu.