Tengiliðir skipulagðir
Til að bæta við nýjum tengilið skaltu velja
Valkostir
>
Nýr tengiliður
.
Til að hengja smámynd við tengilið velurðu
Valkostir
>
Breyta
>
Valkostir
>
Bæta við smámynd
. Smámyndin
birtist þegar tengiliðurinn hringir í þig.
Hægt er að hlusta á raddmerki sem tengt er við tengilið
með því að velja
Valkostir
>
Spila raddmerki
.
Til að leita að tengilið slærðu fyrstu bókstafina í nafninu
inn í leitarreitinn. Þá birtist listi á skjánum með nöfnum
sem byrja á innslegnu stöfunum.
39
Til að breyta upplýsingum um tengilið skaltu velja
Valkostir
>
Breyta
.
Ábending: Einnig er hægt að nota Nokia PC Suite
til að bæta við og breyta tengiliðum.
Til að senda upplýsingar um tengiliði velurðu
Valkostir
>
Senda
.
Hægt er að velja sjálfgefið númer eða netfang fyrir
tengiliðinn þannig að þú getir auðveldlega hringt í þetta
númer eða sent skilaboð á þetta netfang ef fleiri en eitt
númer eða netföng hafa verið vistuð fyrir þennan tengilið.
Sjálfgefna númerið er einnig notað í raddstýrðri
hringingu.
Til þess að breyta sjálfgefnum upplýsingum um tengilið
opnarðu tengiliðaspjaldið og velur
Valkostir
>
Sjálfvalin
. Veldu númerið eða netfangið sem þú vilt nota
sem sjálfgefið. Sjálfgefna númerið eða netfangið er
undirstrikað á tengiliðaspjaldinu.
Til að bæta tengilið við hóp velurðu
Valkostir
>
Bæta við
hóp
(birtist aðeins ef þú hefur búið til hóp).
Ábending: Til þess að athuga hvaða hópum
tengiliður tilheyrir velurðu
Valkostir
>
Tilheyrir
hópum
.
Veldu
Valkostir
>
Skrá hraðval
til að bæta hraðvali við
símanúmer tengliðarins.
Til að breyta birtingarröð skírnarnafna og eftirnafna
tengiliða velurðu
Valkostir
>
Stillingar
og
Eftirnafn.
Fornafn
eða
Fornafn. Eftirnafn
.