SIM-skrá
Veldu
Valkostir
>
SIM-tengiliðir
>
SIM-skrá
.
Í SIM-skránni má sjá nöfn og númer sem geymd eru á SIM-
kortinu, það má bæta við númerum, breyta þeim eða afrita
þau í tengiliði og einnig má hringja.
Tengiliður á SIM-kortinu er skoðaður með því að velja hann
og ýta á skruntakkann.
Til að bæta tengiliðum við SIM-skrána skaltu velja
Valkostir
>
Nýr SIM-tengiliður
. Sláðu inn upplýsingar
um tengiliðinn og veldu
Lokið
.
Til að skoða listann yfir númer í föstu númeravali skaltu
velja
Valkostir
>
SIM-tengiliðir
>
Í föstu númeravali
.
Aðeins er hægt að velja þessa stillingu ef SIM-kortið styður
hana.
Til að takmarka símtöl úr tækinu við ákveðin símanúmer
skaltu velja
Valkostir
>
Virkja fast nr.val
. Nauðsynlegt
er að hafa PIN2-númer til að kveikja og slökkva á föstu
númeravali og breyta tengiliðum í föstu númeravali.
Númerið fæst hjá þjónustuveitunni.
Nýjum númerum er bætt við listann með því að velja
Valkostir
>
Nýr SIM-tengiliður
. Þú þarft PIN2-númerið
til að velja þennan valkost. Þegar þú notar fast númeraval
geturðu ekki komið á pakkagagnatengingum nema til að
senda textaboð um pakkagagnatengingu. Í því tilviki þarf
númer skilaboðamiðstöðvarinnar og númer viðtakandans
að vera á lista fasts númeravals. Þegar fast númeraval er
virkt kann að vera hægt að hringja í opinbera
neyðarnúmerið sem er forritað í tækið.
Til að skoða þín eigin númer, ef þau eru vistuð á SIM-
kortinu, velurðu
Valkostir
>
Eigin númer
. Til dæmis
gætir þú hafa gerst áskrifandi að tveimur símalínum með
sama SIM-kortinu. Þín eigin númer er ekki að finna á öllum
SIM-kortum.
Veldu
Valkostir
>
Breyta
til að breyta
tengiliðaupplýsingunum.
Veldu
Valkostir
>
Afrita í Tengiliði
til að afrita
tengiliðinn úr SIM-skránni í Tengiliðir.
Veldu
Valkostir
>
SIM-upplýsingar
til að kanna hversu
mikið minni er laust á SIM-kortinu.