Nokia E51 - Tengst við netsímaþjónustuna

background image

Tengst við netsímaþjónustuna

Tækið þitt þarf að vera tengt við netsímaþjónustuna til að

hægt sé að hringja og svara netsímtölum. Ef þú hefur valið

sjálfvirka innskráningu tengist tækið sjálfkrafa við

netsímaþjónustuna. Ef þú skráir þig handvirkt inn í

þjónustuna skaltu velja tiltækt símkerfi af listanum og

Velja

.

Listinn yfir símkerfi uppfærist einnig sjálfkrafa á 15

sekúndna fresti. Til að uppfæra listann handvirkt velurðu

Valkostir

>

Uppfæra

. Notaðu þennan valkost ef

þráðlausa staðarnetið þitt er ekki á listanum.

Til að velja netsímaþjónustu fyrir hringd símtöl, ef tækið

er tengt við fleiri en eina þjónustu, velurðu

Valkostir

>

Skipta um þjónustu

.

Til að velja og stilla nýja þjónustu velurðu

Valkostir

>

Stilla þjónustu

. Þessi valkostur sést aðeins ef þjónustur

sem ekki hafa verið stilltar eru til staðar.
Til að vista símkerfi sem þú hefur tengst við velurðu

Valkostir

>

Vista tengingu

. Þau netkerfi sem hafa verið

vistuð eru merkt með stjörnu á netkerfalistanum.
Til að tengjast við netsímaþjónustu um falið þráðlaust

staðarnet velurðu

Valkostir

>

Nota falda tengingu

.

Til að slíta tengingunni við netsímaþjónustuna velurðu

Valkostir

>

Aftengjast við þjónustu

.