Nokia E51 - Netsímtöl

background image

Netsímtöl

Veldu

Valmynd

>

Tengingar

>

Netsími

.

Tækið styður símtöl um internetið (netsímtöl). Tækið

reynir fyrst og fremst að koma á neyðarsímtölum í

farsímakerfum. Ef neyðarsímtal tekst ekki í farsímakerfi

reynir tækið neyðarsímtal um þjónustuveitu netsímtala.

Vegna þeirrar útbreiðslu sem farsímatækni hefur náð skal

nota farsímakerfi fyrir neyðarsímtöl þar sem það er hægt.

Ef farsíminn er innan þjónustusvæðis skal ganga úr skugga

um að kveikt sé á honum og að hægt sé að hringja áður

en reynt er að hringja neyðarsímtal. Möguleikinn á

neyðarsímtölum um internetið fer eftir tiltækni þráðlauss

staðarnets og því hvort þjónustuveitan hafi sett símann

upp fyrir slík símtöl. Nánari upplýsingar um neyðarsímtöl

um internetið fást hjá þjónustuveitu netsímtala.
Með netsímaþjónustunni (sérþjónusta) er hægt að hringja

og svara símtölum um internetið með VoIP-tækninni

(voice over internet protocol). Hægt er að koma á

netsímtölum á milli tölva, milli farsíma og milli VoIP-tækja

og venjulegs síma. Til að hringja eða taka við netsímtali

verður tækið þitt að vera innan WLAN-svæðis. Mismunandi

er hvort þjónustan er í boði eftir löndum eða svæðum.