Nokia E51 - Samnýting hreyfimynda

background image

Samnýting hreyfimynda

Notaðu samnýtingu hreyfimynda (sérþjónusta) til að

senda rauntíma hreyfimynd eða myndskeið úr tækinu í

samhæft farsímatæki meðan á símtali stendur. Til að nota

þennan möguleika verður tækið að vera innan

þjónustusvæðis UMTS-símkerfis.
1. Hringdu í valdan tengilið. Hægt er að samnýta

hreyfimynd þegar símtalinu hefur verið komið á og

tækið þitt er skráð á SIP-miðlarann.

2. Til að senda rauntíma hreyfimynd eða myndskeið úr

tækinu velurðu

Valkostir

>

Samnýta hreyfimynd

>

Beint

eða

Myndskeið

. Hægt er að forskoða myndskeið

með því að velja

Valkostir

>

Spila

.

3. Veldu viðtakandann úr Tengiliðir eða sláðu inn SIP-

fang hans til að senda honum boð. Samnýting hefst

sjálfkrafa þegar viðtakandinn samþykkir boðið.

4. Samnýtingunni er lokað með því að velja

Stöðva

. Engin

truflun verður á símtalinu.