Hringja símtal
Raddmerki fyrir tengilið er nafnið eða gælunafnið sem er
vistað á tengiliðaspjaldinu í Tengiliðir.
Til athugunar: Notkun raddmerkja getur verið
erfið í hávaðasömu umhverfi eða í neyðartilvikum, því ætti
ekki að treysta eingöngu á raddstýrt val við allar aðstæður.
Til að hlusta á raddmerki skaltu opna tengiliðaspjald og
velja
Valkostir
>
Spila raddmerki
.
1. Haltu raddtakkanum inni til að hringja með
raddskipun.
2. Þegar þú heyrir tóninn eða sérð merki á skjánum skaltu
bera skýrt fram nafnið sem vistað er á
tengiliðaspjaldinu.
3. Tækið spilar tilbúið raddmerki fyrir tengiliðinn á því
tungumáli sem er valið og birtir nafnið og
símanúmerið. Eftir 1,5 sekúndur hringir tækið í
númerið. Ef tækið valdi rangan tengilið skaltu velja
Næsta
til að skoða aðrar niðurstöður í lista eða
Hætta
til að hætta við raddstýrða hringingu.
Ef nokkur númer eru vistuð undir nafninu velur tækið
sjálfgefna númerið, hafi það verið tilgreint. Annars
velur tækið fyrsta númerið í eftirfarandi röð:
Farsími
,
Farsími (heima)
,
Farsími (vinna)
,
Sími
,
Sími
(heima)
og
Sími (vinna)
.