Fylgst með öllum samskiptum
Til að skoða öll símtöl, textaskilaboð eða gagnatengingar
sem tækið hefur skráð skaltu opna flipann með almennu
notkunarskránni.
Til að skoða nákvæmar upplýsingar um samskiptaferli
skaltu velja það og styðja á skruntakkann.
Ábending: Undiratburðir, líkt og skilaboð sem voru
send í fleiri en einum hluta eða
pakkagagnatengingar, eru skráðir sem einn
samskiptaatburður. Tenging við pósthólfið þitt,
skilaboðastöð margmiðlunarskilaboða eða vefsíður
eru sýndar sem pakkagagnatengingar.
Til að bæta símanúmeri úr samskiptaatburði við Tengiliði
velurðu
Valkostir
>
Vista í Tengiliðum
og velur að búa
til nýjan tengilið eða að bæta símanúmerinu við tengilið
sem þegar er til.
Til að afrita númerið, til dæmis til að líma það inn í
textaskilaboð, velurðu
Valkostir
>
Afrita númer
.
Til að skoða tiltekna gerð samskiptaatburðar, eða
samskipti við tiltekinn aðila, skaltu velja
Valkostir
>
Sía
og svo síuna sem á að nota.
Veldu
Valkostir
>
Hreinsa notkun.skrá
til að eyða
innihaldi notkunarskrárinnar, teljurum nýlegra símtala og
skilatilkynningum skilaboða varanlega.