Dagbókaratriði búin til
Hægt er að búa til eftirfarandi gerðir dagbókaratriða:
•
Fundur
með ákveðna dag- og tímasetningu.
•
Minnisatriði
sem varða allan daginn og ekki tiltekinn
tíma hans.
•
Afmæli
minna þig á afmælisdaga og viðburði. Þær
varða allan daginn og ekki tiltekinn tíma hans. Færslur
fyrir afmælisdaga eru endurteknar á hverju ári.
•
Verkefni
minna á verkefni með lokadagsetningu og
ekki með lokatíma.
Til að búa til dagbókaratriði skaltu velja dagsetningu og
svo
Valkostir
>
Nýtt atriði
. Veldu gerð atriðisins.
Mismunandi er hvaða stillingar er hægt að velja fyrir fundi,
minnisatriði, hátíðisdaga og verkefni.
Veldu úr eftirfarandi:
•
Efni
eða
Tilefni
— Sláðu inn lýsingu á atriðinu.
•
Staður
— Sláðu inn staðsetningarupplýsingar.
•
Byrjunartími
— Sláðu inn upphafstímann.
•
Lokatími
— Sláðu inn lokatímann.
•
Fyrsti dagur
eða
Dagsetning
— Sláðu inn
upphafsdaginn eða dagsetningu atriðisins.
•
Lokadagur
— Sláðu inn lokadagsetninguna.
•
Viðvörun
— Veldu áminningu fyrir fundi og
afmælisatriði. Áminningin birtist í dagsskjánum.
•
Endurtaka
— Veldu hvort endurtaka eigi atriðið og þá
hvenær. Tilgreindu gerð endurtekningarinnar, tíðni og
hugsanlega lokadagsetningu.
•
Samstilling
— Ef þú velur
Einkamál
getur einungis þú
séð dagbókaratriðið þar sem það er falið fyrir öðrum
sem hafa aðgang að dagbókinni á netinu. Ef þú velur
Sýnileg
er dagbókaratriðið sýnilegt öðrum sem hafa
aðgang að dagbókinni á netinu. Ef þú velur
Engin
er
dagbókaratriðið ekki afritað yfir í tölvuna þína við
samstillingu.
Ábending: Gakktu úr skugga um að þú hafir valið
réttu borgina í forritinu Klukka þar sem
dagbókaratriði geta breyst þegar borginni er breytt
og nýja borgin er í öðru tímabelti.
Til að breyta atriði skaltu fletta að því og velja
Valkostir
>
Opna
. Breyttu upplýsingunum í reitunum.
Til að eyða dagbókaratriði velurðu
Valkostir
>
Eyða
og
síðan
Eyða fyrir
til að eyða öllum atriðum á undan valinni
dagsetningu eða
Öllum atriðum
til að eyða öllum
dagbókaratriðum úr tækinu.
Ábending: Þegar þú breytir eða eyðir endurteknu
atriði skaltu tilgreina hvernig þú vilt að
breytingarnar taki gildi. Ef þú velur
Öllum
dagbókaratriðum eytt
er öllum endurteknum
atriðum eytt. Ef þú velur
Eyða atriði
er aðeins opnu
atriði eytt.
Til að senda dagbókaratriði í samhæft tæki velurðu
Valkostir
>
Senda
>
Sem SMS
,
Með margmiðlun
,
Með
tölvupósti
,
Með Bluetooth
eða
Með IR
. Ef hitt tækið er
ekki samhæft við UTC (Coordinated Universal Time) kunna
upplýsingar um tíma í móttekna dagbókaratriðinu að vera
rangt birtar.
Til að bæta mótteknu dagbókaratriði inn í dagbókina þína
skaltu opna viðhengi skilaboðanna og velja
Valkostir
>
Vista í dagbók
.
42
Til að svara mótteknu dagbókaratriði velurðu
Samþykkja
,
Með fyrirvara
eða
Hafna
ef hægt er. Ef þú
samþykkir atriðið eða merkir það með fyrirvara er því bætt
inn í dagbókina. Hægt er að senda svar til sendandans í
tölvupósti. Veldu
Já
og þá eru skilaboðin vistuð í úthólfinu
þar sem þau bíða sendingar.