Nokia E51 - Vinnuumhverfi

background image

Vinnuumhverfi

Þetta tæki uppfyllir skilyrði um leyfileg mörk

útvarpsbylgna (RF) við notkun annaðhvort í hefðbundinni

stöðu við eyrað eða þegar það er haft að minnsta kosti 2,2

sentimetrar (7/8 úr tommu) frá líkamanum. Ef taska,

beltisklemma eða hald er notað þegar tækið er borið á

réttan hátt á líkamanum ætti slíkur búnaður ekki að

innihalda málm og halda ætti tækinu að minnsta kosti í

þeirri fjarlægð frá líkamanum sem nefnd var hér á undan.
Til að hægt sé að senda gagnaskrár eða skilaboð þarf þetta

tæki góða tengingu við símkerfið. Í sumum tilvikum getur

sending gagna eða boða tafist þar til slík tenging er tiltæk.

Tryggja skal að ofangreindum fjarlægðarfyrirmælum sé

fylgt þar til sendingu er lokið.
Hlutar tækisins eru segulmagnaðir. Málmefni gætu dregist

að tækinu. Ekki má geyma kreditkort eða aðra

segulmagnaða hluti með geymsluminni nálægt tækinu

því upplýsingar sem þar eru geymdar gætu þurrkast út.