Sprengifimt umhverfi
Slökkva skal á tækinu á svæðum þar sem hætta er á
sprengingum og fara að öllum tilmælum sem sjást á
skiltum og leiðbeiningum. Sprengifimt andrúmsloft telst
vera á svæðum þar sem yfirleitt er beðið um að drepið sé
á vél bifreiðar. Neistaflug á slíkum svæðum getur valdið
sprengingu eða eldi og haft í för með sér slys og jafnvel
dauðsföll. Slökkva skal á tækinu á eldsneytisstöðvum, svo
sem við eldsneytisdælur á bensínstöðvum. Virða skal
takmarkanir á notkun útvarpsbúnaðar í
eldsneytisgeymslum, svæðum þar sem geymsla og
dreifing eldsneytis fer fram, efnaverksmiðjum eða þar sem
verið er að sprengja. Svæði þar sem sprengihætta er mikil
eru oftast vel auðkennd, en þó ekki alltaf. Þau eru m.a.
neðri þilför skipa, aðstaða til efnaflutninga eða geymslu
og svæði þar sem efni líkt og korn, ryk eða málmagnir eru
í lofti. Þú ættir að kanna það hjá framleiðendum
farartækja sem nota jarðgas (líkt og própan eða bútan) til
að ákvarða hvort hægt sé að nota þetta tæki á öruggan
hátt nálægt þeim.
134