Ígrædd lækningatæki
Framleiðendur lækningatækja mæla með því að 15,3 cm
(6 tommu) lágmarksbil sé haft á milli þráðlauss tækis og
ígrædds lækningabúnaðar, eins og gangráðs eða ígrædds
hjartarafstuðstækis til þess að komist sé hjá hugsanlegri
truflun í lækningabúnaðinum. Einstaklingar með slíkan
búnað ættu:
• Haltu alltaf þráðlausu tæki í meira en 15,3 cm (6
tommu) fjarlægð frá lækningartæki þegar kveikt er á
þráðlausa tækinu.
• Ekki að ganga með þráðlausa tækið í brjóstvasa
133
• Hafa þráðlausa tækið við eyrað sem er fjær
lækningabúnaðinum til að draga úr líkum á truflunum.
• Ef grunur leikur á að truflun sé að verða skal slökkva á
þráðlausa tækinu tafarlaust.
• Lesið og fylgið leiðbeiningum frá framleiðanda
ígrædda lækningabúnaðarins.
Ef þú hefur spurningar um notkun þráðlausa tækisins með
ígræddum lækningabúnaði skaltu hafa samband við
heilbrigðisstarfsfólk.