Nokia E51 - Lækningatæki

background image

Lækningatæki

Notkun búnaðar sem sendir frá sér útvarpsbylgjur, þar

með talin notkun þráðlausra síma, kann að trufla virkni

lækningatækja sem ekki eru nægilega vel varin. Hafa skal

samband við lækni eða framleiðanda lækningatækisins til

þess að komast að því hvort það sé nægilega vel varið fyrir

utanaðkomandi útvarpsbylgjum eða til að afla nánari

upplýsinga. Slökkva skal á tækinu í námunda við

heilsugæslustöðvar ef auglýstar reglur þess efnis kveða á

um að það sé gert. Sjúkrastofnanir eða

heilsugæslustöðvar kunna að nota búnað sem getur verið

næmur fyrir utanaðkomandi útvarpsbylgjum.