Nokia E51 - Upplýsingar um rafhlöðu og hleðslutæki

background image

Upplýsingar um rafhlöðu og hleðslutæki

Upplýsingar um

rafhlöðu og

hleðslutæki

Tækið gengur fyrir endurhlaðanlegri rafhlöðu. Þetta tæki

er ætlað til notkunar með BP-6MT rafhlöðu. Hugsanlega

verða hægt að fá aðrar gerðir rafhlaðna frá Nokia fyrir

þetta tæki. Tækið er ætlað til notkunar þegar það er hlaðið

með eftirfarandi hleðslutækjum: AC-5 . Númer

hleðslutækisins getur verið mismunandi eftir klónni sem

er notuð. Gerð klónnar er auðkennt af einu af eftirfarandi:

E, EB, X, AR, U, A, C eða UB.
Hægt er að hlaða og afhlaða rafhlöðu nokkur hundruð

sinnum en að því kemur að hún gengur úr sér. Þegar tal-

og biðtími er orðinn mun styttri en eðlilegt er skal skipta

um rafhlöðu. Aðeins skal nota rafhlöður sem samþykktar

eru af Nokia og aðeins skal endurhlaða rafhlöðu með

hleðslutækjum sem Nokia hefur samþykkt til notkunar

með þessu tæki. Notkun ósamþykktra rafhlaða eða

hleðslutækja getur valdið eldhættu, sprengingu, leka eða

haft aðra áhættu í för með sér.
Ef verið er að nota rafhlöðu í fyrsta skipti, eða ef rafhlaðan

hefur ekki verið notuð í langan tíma, kann að vera

nauðsynlegt að tengja hleðslutækið, aftengja það síðan

og tengja það aftur til að hefja hleðsluna. Ef rafhlaðan er

alveg tóm geta liðið nokkrar mínútur þar til hleðsluvísirinn

birtist á skjánum eða þar til hægt er að hringja.
Alltaf skal slökkva á tækinu og aftengja hleðslutækið áður

en rafhlaðan er fjarlægð.
Taka skal hleðslutækið úr sambandi við

rafmagnsinnstungu og tækið þegar það er ekki í notkun.

Ekki má hafa fullhlaðna rafhlöðnu í sambandi við

hleðslutæki þar sem ofhleðsla getur stytt líftíma hennar.

Fullhlaðin rafhlaða tapar hleðslunni smátt og smátt ef hún

er ekki í notkun.
Æskilegast er að rafhlaðan sé alltaf höfð í hita á bilinu frá

15°C að 25°C (frá 59°F að 77°F). Of mikill hiti eða kuldi

draga úr endingu og líftíma rafhlöðu. Tæki með heitri eða

kaldri rafhlöðu kann að hætta að starfa tímabundið.

Einkum hefur mikið frost takmarkandi áhrif á rafhlöður.
Gæta skal þess að valda ekki skammhlaupi í rafhlöðunni.

Skammhlaup getur orðið fyrir slysni þegar málmhlutur,

svo sem mynt, bréfaklemma eða penni veldur beinni

tengingu milli + og - skautanna á rafhlöðunni. (Þau líta út

eins og málmrendur á rafhlöðunni.) Til dæmis getur þetta

gerst þegar vararafhlaða er höfð í vasa eða tösku.

Skammhlaup milli skautanna getur valdið skemmdum á

rafhlöðunni eða hlutnum sem veldur tengingunni.
Ekki má fleygja rafhlöðum í eld þar sem þær geta sprungið.

Rafhlöður geta einnig sprungið ef þær skemmast. Farga

128

background image

skal rafhlöðum í samræmi við staðbundin lög og

reglugerðir. Skila skal þeim í endurvinnslu þegar mögulegt

er. Ekki skal fleygja þeim með heimilisúrgangi.
Ekki skal taka sundur, skera, opna, merja, beygja,

afmynda, gata eða tæta rafhlöður. Ef rafhlaða lekur má

vökvi hennar ekki komast í snertingu við húð eða augu. Ef

slíkt kemur fyrir skal skola húð eða augu umsvifalaust með

vatni, eða leita til læknis.
Ekki skal breyta, endurhanna, reyna að setja hluti í

rafhlöðuna sem ekki eiga að vera þar, dýfa rafhlöðunni í

vatn eða aðra vökva, eða bleyta hana.
Röng notkun rafhlöðunnar hefur í för með sér eld- eða

sprenghættu, eða aðra hættu. Ef þú missir tækið eða

rafhlöðuna, og þá sérstaklega á hart yfirborð, og telur að

rafhlaðan hafi skemmst, skaltu fara með hana til

þjónustuvers til skoðunar áður en þú heldur áfram að nota

hana.
Aðeins skal nota rafhlöðuna til þess sem hún er ætluð.

Aldrei skal nota skemmt hleðslutæki eða rafhlöðu. Geyma

skal rafhlöðuna þar sem lítil börn ná ekki til.

Leiðbeiningar um