SIM-aðgangssnið
Með SIM-aðgangssniðinu getur þú komist inn á SIM-kortið
í tækinu þínu um samhæfan bílbúnað. Þannig þarftu ekki
annað SIM-kort til að komast í upplýsingar á SIM-kortinu
og tengjast við GSM-símkerfi.
Til að nota SIM-aðgangssniðið þarftu eftirfarandi:
• Samhæfan bílbúnað sem styður þráðlausa Bluetooth-
tækni
• Gilt SIM-kort í tækið þitt
Þegar ytri SIM-stilling er virk í þráðlausa tækinu er aðeins
hægt að hringja og svara símtölum með samhæfum
aukahlut sem er tengdur við það (t.d. bílbúnaði). Ekki er
hægt að hringja úr þráðlausa tækinu þegar stillingin er
virk, nema í neyðarnúmerið sem er forritað í tækið. Eigi að
hringja úr tækinu þarf fyrst að slökkva á ytri SIM-stillingu.
Ef tækinu hefur verið læst skal fyrst slá inn lykilnúmerið til
að opna það.
92
Nánari upplýsingar um bílbúnað og samhæfni við tækið
þitt má finna á vefsíðu Nokia og í notendahandbókinni
fyrir bílbúnaðinn.
SIM-aðgangssniðið notað
1. Veldu
Valmynd
>
Tengingar
>
Bluetooth
>
Ytra
SIM
>
Kveikt
.
2. Gerðu Bluetooth virkt í bílbúnaðinum.
3. Notaðu bílbúnaðinn til að hefja leit að samhæfum
tækjum. Leiðbeiningar er að finna í notendahandbók
bílbúnaðarsímans.
4. Veldu tækið þitt úr lista yfir samhæf tæki.
5. Sláðu aðgangskóða Bluetooth sem sýndur er á skjá
bílbúnaðartækisins inn í tækið þitt til að para tækin.
Ábending: Ef þú hefur þegar farið inn á SIM-kortið
úr bílbúnaðinum með virka notandasniðinu leitar
bílbúnaðurinn sjálfkrafa að tæki með því SIM-korti.
Ef það finnur tækið þitt og virkjar leyfið sjálfvirkt
tengist bílbúnaðurinn sjálfkrafa við GSM-símkerfið
þegar þú ræsir bílinn.
Þegar snið fyrir ytri aðgang að SIM-korti hefur verið virkjað
getur þú notað forrit á tækinu þínu sem þurfa ekki
tengingu við símkerfi eða SIM-þjónustu.
Til að koma á tengingu milli tækisins þíns og bílbúnaðarins
án þess að samþykkja það sérstaklega velurðu
Valmynd
>
Tengingar
>
Bluetooth
og opnar flipann fyrir pöruð
tæki. Flettu að bílbúnaðinum, ýttu á skruntakkann og
sláðu inn aðgangskóða Bluetooth. Þegar tækið fer fram á
að gera tenginguna sjálfvirka skaltu velja
Já
. Ef þú stillir á
Nei
verðurðu að samþykkja beiðnir um tengingu úr
bílbúnaðinum í hvert skipti.
Til að ljúka ytri SIM-aðgangstengingunni úr tækinu þínu
velurðu
Valmynd
>
Tengingar
>
Bluetooth
>
Ytra
SIM
>
Slökkt
.