Nokia E51 - Sending og móttaka gagna með Bluetooth

background image

Sending og móttaka gagna

með Bluetooth

1. Þegar kveikt er á Bluetooth í fyrsta skipti er beðið um

að tækinu sé gefið nafn. Gefðu tækinu þínu

auðþekkjanlegt nafn svo auðveldara verði að bera

kennsl á það þegar mörg Bluetooth-tæki eru á

svæðinu.

2. Veldu

Bluetooth

>

Kveikt

.

3. Veldu

Sýnileiki síma míns

>

Sýnilegur öllum

eða

Tilgreina tímabil

. Ef þú velur

Tilgreina tímabil

þarftu

að tilgreina þann tíma sem tækið þitt er sýnilegt

öðrum. Notendur annarra Bluetooth-tækja geta nú séð

tækið og nafnið sem var slegið inn.

4. Opnaðu forritið sem geymir hlutinn sem þú vilt senda.
5. Veldu hlutinn og svo

Valkostir

>

Senda

>

Með

Bluetooth

. Tækið leitar að Bluetooth-tækjum innan

svæðisins og birtir þau í lista.

Ábending: Ef gögn hafa áður verið send um

Bluetooth birtist listi með fyrri

leitarniðurstöðum. Leitað er að fleiri Bluetooth-

tækjum innan svæðisins með því að velja

Fleiri

tæki

.

6. Veldu tækið sem þú vilt tengjast við. Ef hitt tækið fer

fram á pörun áður en hægt er að flytja gögn er beðið

um aðgangskóða.

Þegar tengingu hefur verið komið á birtist textinn

Sendi

gögn

.

Mappan Sent í forritinu Skilaboð vistar ekki skilaboð sem

hafa verið send um Bluetooth.
Til að sækja gögn með Bluetooth velurðu

Bluetooth

>

Kveikt

og

Sýnileiki síma míns

>

Sýnilegur öllum

til að

sækja gögn frá ópöruðu tæki eða

Falinn

til að sækja

eingöngu gögn frá pöruðu tæki. Þegar gögn berast um

Bluetooth heyrist tónn og spurt er hvort taka eigi á móti

skilaboðunum sem innihalda gögnin. Ef þú samþykkir eru

skilaboðin sett í innhólfsmöppuna í forritinu Skilaboð.

Ábending: Hægt er að nálgast skrárnar í tækinu

eða á minniskortinu með því að nota samhæfan

aukahlut sem styður FTP (til dæmis fartölvu).

Sjálfkrafa er slökkt á Bluetooth-tengingu eftir að gögn

hafa verið send eða móttekin. Aðeins er hægt að hafa

tengingar sem ekki er verið að nota í gangi ef tengingin

er við PC Suite eða aukabúnað, eins og höfuðtól.