Nokia E51 - Pörun tækja

background image

Pörun tækja

Opnaðu flipann pöruð tæki.
Fyrir pörun skaltu búa til þitt eigið lykilorð (1-16 tölustafir)

og biðja notanda hins tækisins um að nota sama lykilorð.

Tæki sem ekki hafa notandaviðmót eru með fast lykilorð.

Aðeins þarf að slá inn lykilorðið þegar tækin eru tengd í

fyrsta skipti. Hægt er að heimila tenginguna að pöruninni

lokinni. Með því að para saman tæki og heimila

tenginguna verður fljótlegra að koma á tengingu þar sem

91

background image

ekki þarf að samþykkja tenginguna á milli paraðra tækja í

hvert skipti sem henni er komið á.
Lykilorð fyrir ytri SIM-aðgang verður að vera 16 tölustafir.
1. Veldu

Valkostir

>

Nýtt parað tæki

. Tækið byrjar þá

að leita að Bluetooth-tækjum á svæðinu. Ef gögn hafa

áður verið send um Bluetooth birtist listi með fyrri

leitarniðurstöðum. Leitað er að fleiri Bluetooth-

tækjum innan svæðisins með því að velja

Fleiri tæki

.

2. Veldu tækið sem para á tækið þitt við og sláðu inn

lykilorðið. Slá verður inn sama lykilorð í hitt tækið.

3. Veldu

til að koma alltaf sjálfkrafa á tengingu milli

tækisins þíns og annars tækis, og

Nei

til ef þú vilt

staðfesta tenginguna í hvert skipti sem tækin reyna að

tengjast. Eftir pörunina er tækið vistað á síðu paraðra

tækja.

Til að gefa paraða tækinu gælunafn velurðu

Valkostir

>

Gefa stuttnefni

. Gælunafnið birtist eingöngu í þínu tæki.

Pörun er eytt með því að velja hana og svo

Valkostir

>

Eyða

. Til að eyða öllum pörunum velurðu

Valkostir

>

Eyða öllum

. Ef tækið er tengt við annað tæki og pöruninni

við það er eytt, er pörunin fjarlægð strax og tengingunni

er slitið.
Til að leyfa pöruðu tæki að tengjast sjálfkrafa við þitt tæki

velurðu

Stilla sem heimilað

. Hægt er að koma á tengingu

á milli tækisins þíns og hins tækisins án vitneskju þinnar.

Ekki þarf að samþykkja eða heimila tenginguna

sérstaklega. Notaðu þessa stöðu fyrir þín eigin tæki, líkt

og höfuðtól eða tölvu, og tæki þeirra sem þú þekkir og

treystir. Ef þú vilt samþykkja tengingarbeiðni frá hinu

tækinu í hvert skipti velurðu

Stilla sem óheimilað

.

Til að nota Bluetooth-hljóðaukahlut, t.d. handfrjálsan

Bluetooth-búnað eða höfuðtól, þarf að para tækið við

aukahlutinn. Lykilorð aukahlutarins og nánari upplýsingar

er að finna í notendahandbók hans. Kveiktu á

hljóðaukahlutnum til að tengjast við hann. Sumir

hljóðaukahlutir tengjast sjálfkrafa við tækið. Ef það gerist

ekki skaltu opna flipann fyrir pöruð tæki, fletta að

aukahlutnum og velja

Valkostir

>

Tengjast við

hljóðtæki

.