WLAN-hjálp
Veldu
Valmynd
>
Tengingar
>
St.net.hjálp
.
WLAN-hjálpin auðveldar þér að finna og tengjast við
þráðlaust staðarnet. Þegar forritið er opnað leitar tækið
að þráðlausum staðarnetum og birtir þau í lista.
Til að uppfæra listann yfir þráðlaus staðarnet sem eru í
boði skaltu velja
Valkostir
>
Uppfæra
.
Til að hefja eða halda áfram vafri á vefnum í gegnum
aðgangsstað þráðlauss staðarnets flettirðu á staðarnet og
velur
Valkostir
>
Ræsa vefskoðun
eða
Halda skoðun
áfram
.
Veldu
Valkostir
>
Aftengjast v. staðarn.
til að slíta
tengingu við þráðlaust staðarnet
Upplýsingar um þráðlausa staðarnetið eru opnaðar með
því að velja
Valkostir
>
Upplýsingar
.
Til að vista aðgangsstaðinn fyrir þráðlausa staðarnetið
velurðu
Valkostir
>
Tilgreina aðg.stað
.
Gerðu alltaf eina af tiltækum dulkóðunaraðferðum virka
til að auka öryggi þráðlausrar staðarnetstengingar.
Notkun dulkóðunar dregur úr hættunni á því að einhver
fái aðgang að gögnunum þínum án heimildar.
Hjálpin notuð á virkum biðskjá
Í virkum biðskjá sýnir WLAN-hjálpin stöðu þráðlausra
staðarnettenginga og staðarnetleita. Valkostir eru
skoðaðir með því að fletta að röðinni sem sýnir stöðuna
og ýta á skruntakkann. Þú getur ræst vafrann þegar þú ert
tengd/ur við þráðlaust staðarnet, aftengst við staðarnetið,
leitað að staðarnetum og kveikt og slökkt á sjálfvirkri leit.
Þessir valkostir fara eftir stöðu þinni.
94
Ef slökkt er á leit staðarneta og tækið er ekki tengt við
staðarnet sést
Slökkt á staðarnetsleit
í virkum biðskjá.
Til að kveikja á leit og leita að þráðlausum staðarnetum
flettirðu að röðinni sem sýnir stöðuna og ýtir á
skruntakkann.
Til að ræsa leit að þráðlausum
staðarnetum flettirðu að
stöðuröðinni, ýtir á
skruntakkann og velur
Leita að
staðarnetum
. Til að slökkva á
leit að þráðlausum
staðarnetum flettirðu að
stöðuröðinni, ýtir á
skruntakkann og velur
Slökkva
á sjálfv. leit
.
Þegar
Ræsa vefskoðun
er valið
býr uppsetningarhjálpin
sjálfkrafa til aðgangsstað fyrir
það þráðlausa staðarnet sem er
valið. Einnig er hægt að nota aðgangsstaðinn með öðrum
forritum sem þurfa þráðlausa staðarnettengingu.
Ef þú velur öruggt þráðlaust staðarnet er beðið um
lykilorð. Nauðsynlegt er að slá inn SSID-kóða til að tengjast
við falið staðarnet.