Nokia E51 - Við þráðlaus staðarnet

background image

Við þráðlaus staðarnet

Mikilvægt: Alltaf skal virkja eina af tiltækum

dulkóðunaraðferðum til að auka öryggi þráðlausrar

staðarnetstengingar. Notkun dulkóðunar dregur úr

hættunni á því að einhver fái aðgang að gögnunum þínum

án heimildar.
Til að nota WLAN þarf að búa til netaðgangsstað.

Aðgangsstaðurinn er notaður fyrir forrit sem þurfa að

tengjast við internetið. Tengingu við WLAN er komið á

þegar þú býrð til gagnatengingu með WLAN-aðgangsstað.

Þegar þú lokar gagnatengingunni er þráðlausu

staðarnetstengingunni einnig lokað. Einnig er hægt að

loka tengingunni handvirkt.

Sjá „Stjórnandi

tenginga“, bls. 98.

Hægt er að nota þráðlaust staðarnet meðan á símtali

stendur eða meðan pakkagagnatenging er virk. Aðeins er

93

background image

hægt að tengjast við eitt tæki fyrir WLAN-aðgangsstað í

einu en nokkur forrit geta notað sama netaðgangsstaðinn.
Hægt er að nota WLAN þó svo að ótengda sniðið sé í

notkun. Mundu að uppfylla allar viðeigandi öryggiskröfur

þegar þráðlausu staðarnetssambandi er komið á og það

er notað.
Ef þú færir tækið til innan WLAN og úr færi við aðgangsstað

þess finnur reikiaðgerðin sjálfkrafa nýjan aðgangstað fyrir

tækið þitt innan sama nets. Á meðan þú ert í færi við

aðgangsstaði sem tilheyra sama neti getur tækið þitt

haldið tengingunni við það net.

Ábending: Til að kanna MAC-vistfang (media access

control) sem ber kennsl á tækið þitt, t.d. til að stilla

MAC-vistfang tækisins þíns á beini fyrir þráðlaust

staðarnet, skaltu slá inn *#62209526# í tækið. MAC-

vistfangið sést á skjánum.