Nokia E51 -   Textaskilaboð skrifuð og send 

background image

Textaskilaboð skrifuð og send

Veldu

Valmynd

>

Skilaboð

.

Tækið styður textaskilaboð sem fara yfir takmörkin fyrir

ein skilaboð. Lengri skilaboð eru send sem tvö eða fleiri

skilaboð. Þjónustuveitan tekur hugsanlega gjald í

samræmi við það. Stafir sem nota kommur eða önnur tákn

ásamt stöfum sumra tungumála, taka meira pláss en

venjulegir stafir og takmarka þannig þann stafafjölda sem

hægt er að senda í einum skilaboðum.
1. Til að skrifa textaskilaboð velurðu

Ný skilaboð

>

SMS-skilaboð

.

2. Í reitnum

Viðtak.

færirðu inn símanúmer viðtakanda

eða ýtir á skruntakkann til að setja inn viðtakanda úr

Tengiliðir. Ef þú slærð inn fleiri en eitt númer skaltu

aðgreina þau með semíkommu.

3. Sláðu inn texta skilaboðanna. Til að nota sniðmát

skaltu velja

Valkostir

>

Bæta í

>

Sniðmáti

.

4. Veldu

Valkostir

>

Senda

.

51