Skilaboð
Veldu
Valmynd
>
Skilaboð
.
Í Skilaboðum (sérþjónusta), geturðu sent og tekið við
textaskilaboðum, margmiðlunarskilaboðum,
hljóðskilaboðum og tölvupóstskeytum. Einnig er hægt að
taka við vefþjónustuboðum, skilaboðum frá endurvarpa,
sérstökum skilaboðum sem innihalda gögn, og senda
þjónustuskipanir.
Áður en þú getur sent eða tekið á móti skilaboðum gætir
þú þurft að gera eftirfarandi:
• Setja gilt SIM-kort í tækið og vera innan
þjónustusvæðis.
• Ganga úr skugga um að símkerfið styðji þá gerð
skilaboða sem á að senda og að opnað hafi verið fyrir
þau á SIM-kortinu.
• Færa inn stillingar fyrir internetaðgangsstað í tækinu.
Sjá „Netaðgangsstaðir“, bls. 95.
• Færa inn stillingar fyrir tölvupóst í tækinu.
Sjá
„Stillingar pósthólfa“, bls. 58.
• Tilgreina stillingar textaskilaboða á tækinu.
Sjá
„Stillingar textaskilaboða“, bls. 57.
• Tilgreina stillingar textaskilaboða á tækinu.
Sjá
„Stillingar margmiðlunarskilaboða“, bls. 57.
Verið getur að tækið beri kennsl á söluaðila SIM-kortsins
og færi sjálfkrafa inn ákveðnar stillingar fyrir skilaboð. Ef
ekki þarftu hugsanlega að færa stillingarnar inn handvirkt,
eða hafa samband við þjónustuveituna til að fá
stillingarnar.