Nokia E51 - SIM-korti og rafhlöðu komið fyrir

background image

SIM-korti og rafhlöðu

komið fyrir

1. Snúðu tækinu þannig að bakhliðin snúi að þér, ýttu á

sleppitakkann (1) og renndu bakhliðinni af (2).

2. Ef rafhlaðan er í tækinu er hún fjarlægð með því að lyfta

henni í áttina sem örin vísar.

3. Settu inn SIM-kortið. Snertiflötur kortsins þarf að snúa

að tengjum tækisins og skáhornið á SIM-kortinu þarf

að vísa að efri hlið tækisins.

4. Settu rafhlöðuna í tækið. Tryggðu að rafskaut

rafhlöðunnar snerti samsvarandi nema í

rafhlöðuhólfinu og settu hana inn í þá átt sem örin

sýnir.

12

background image

5. Renndu bakhliðinni aftur á símann.