Kveikt á tækinu í fyrsta
skipti
1. Haltu rofanum inni.
2. Ef tækið biður um PIN-númer eða
öryggisnúmer skaltu slá inn númerið og
velja
Í lagi
.
3. Ef beðið er um það skaltu slá inn borgina
þar sem þú ert staddur/stödd ásamt
tímanum og dagsetningunni. Sláðu inn
fyrstu stafina í nafni landsins til að velja
það. Mikilvægt er að velja rétt land þar
sem tímasett dagbókaratriði geta breyst
ef nýtt land er í öðru tímabelti.
4. Forritið Velkomin/n opnast. Veldu á milli
valkostanna, eða lokaðu forritinu með
því að velja
Hætta
.
Notaðu stillingaforritið ásamt
hjálparforritum í biðstöðu til að velja
mismunandi stillingar tækisins. Þegar kveikt
er á tækinu kann það að bera kennsl á símafyrirtæki SIM-
kortsins og velja einhverjar stillingar sjálfkrafa. Þú getur
einnig fengið réttar stillingar hjá þjónustuveitunni þinni.
15
Hægt er að kveikja á tækinu án SIM-korts. Þá ræsir tækið
sig án tengingar og ekki er hægt að nota þá valkosti þar
sem tenging við símkerfið er nauðsynleg.
Slökkt er á tækinu með því að halda inni rofanum.