Hleðsla rafhlöðunnar
1. Stingdu hleðslutækinu í samband við innstungu.
2.
Tengdu snúru hleðslutækisins við tækið. Ef rafhlaðan
er alveg tóm gæti liðið einhver tími þar til
hleðsluvísirinn byrjar að hreyfast.
3. Þegar rafhlaðan er fullhlaðin skaltu fyrst taka
hleðslutækið úr sambandi við tækið og síðan úr
innstungunni.
Rafhlaðan hefur þegar verið hlaðin í verksmiðjunni, en
ekki er víst að hún sé fullhlaðin. Til að hámarka
notkunartíma tækisins skaltu hlaða rafhlöðuna að fullu
(hleðslustaðan sést á hleðsluvísinum).
Ábending: Ef þú notar eldri og samhæfa gerð af
Nokia-hleðslutæki geturðu notað það með Nokia
E51 tækinu með því að tengja CA-44 millistykkið við
hleðslutækið. Millistykkið er fáanlegt sem aðskilinn
aukahlutur.
13