Reiknivél
Veldu
Valmynd
>
Skrifstofa
>
Reiknivél
.
Nákvæmni reiknivélarinnar er takmörkuð og hún er ætluð
til einfaldra útreikninga.
Til að reikna skaltu slá inn fyrstu töluna í útreikningnum.
Veldu valkost af aðgerðakortinu, til dæmis samlagningu
eða frádrátt. Sláðu inn aðra tölu útreikningsins og veldu
=. Reiknivélin reiknar tölur í þeirri röð sem þær eru slegnar
inn. Útkoman birtist á skjánum og hægt er að nota hana
sem fyrstu töluna í nýjum útreikningi.
Tækið vistar niðurstöðu síðasta útreiknings í minni sínu.
Talan er áfram í minninu þó svo að forritinu sé lokað eða
slökkt sé á tækinu. Hægt er að sækja vistuðu niðurstöðuna
næst þegar reiknivélin er opnuð með því að velja
Valkostir
>
Síðasta útkoma
.
Til að vista útreikninginn velurðu
Valkostir
>
Minni
>
Vista
.
Til að sækja niðurstöður útreikninga úr minninu og nota
þær í útreikningi velurðu
Valkostir
>
Minni
>
Úr
minni
.