Nokia E51 - Vinna í hópum

background image

Vinna í hópum

Til að búa til nýjan hóp velurðu

Valkostir

>

Hópur

>

Búa til nýjan

. Gefðu hópnum heiti og sláðu inn

þjónustuupplýsingar símafunda, ef þess er þörf. Veldu svo

meðlimi hópsins.

Til að velja aðgerð skaltu fyrst

velja hópinn sem beita á

aðgerðinni á, síðan flettirðu að

aðgerðastikunni og velur

viðeigandi aðgerð. Ef þú vilt

ekki nota valkostinn fyrir alla

meðlimi hópsins opnarðu

hópinn og velur þá meðlimi sem

þú vilt. Veldu svo valkost.
Til að velja aðra valkosti en þá

sem sjást á valstikunni velurðu

Valkostir

>

Aðgerðir

.

Eftirfarandi valkostir eru í boði:

Símtal

— Til að hringja í hópinn eða valda meðlimi

hans. Hringt er í einn meðlim í einu og þeir eru settir í

bið þar til símtalið er gert að símafundi (sérþjónusta).

Hámarksfjöldi þátttakanda veltur á sérþjónustunni.

Búa til skilaboð

— Til að senda textaskilaboð,

margmiðlunarskilaboð eða tölvupóst til hópsins eða

meðlima hans.

Fundarþjónusta

— Til að hringja í fundarþjónustuna

(sérþjónustuna) sem hefur verið valin fyrir tiltekinn

hóp.

Samskiptaskrá

— Til að skoða samskiptaskrána fyrir

hópinn eða valda meðlimi hans.

Virkir minnismiðar

— Skrifa og lesa minnismiða sem

tengjast hópnum.

Liðsleit

— Til að leita að efni tengdu hópnum eða

meðlimum hans.

Kallkerfi

— Til að tala við hópinn eða valda meðlimi

hans með kallkerfinu (sérþjónusta).

Vefbókamerki liðs

— Til að opna

bókamerkjamöppuna sem inniheldur vefsíður hópsins.

63