Nokia E51 - Flýtiritun

background image

Flýtiritun

1. Kveikt er á flýtirituninni með því að ýta tvisvar snöggt

á # takkann. Þá verður flýtiritun virk í öllum ritlum í

tækinu. Vísirinn

sést á skjánum.

2. Ýttu á takkana 2-9 til að slá inn orðið sem þú vilt. Ýttu

aðeins einu sinni á hvern takka fyrir hvern staf.

3. Þegar þú klárar að skrifa orðið og það er rétt

staðfestirðu það með því að fletta til hægri eða ýta á

0 til að setja inn bil.
Ef orðið er ekki rétt skaltu ýta endurtekið á * til að

skoða samsvarandi orð í orðabókinni.

28

background image

Ef ? birtist aftan við orðið er orðið sem þú vildir slá inn

ekki í orðabókinni. Orði er bætt inn í orðabókina með

því að velja

Stafa

, slá inn orðið á venjulegan hátt (allt

að 32 stafir) og velja síðan

Í lagi

. Þá er orðinu bætt inn

í orðabókina. Þegar orðabókin er full er elsta viðbætta

orðinu skipt út fyrir það nýjasta.

Sláðu inn fyrri hluta samsetts orðs og staðfestu það með

því að fletta til hægri. Sláðu inn seinni hluta orðsins. Ýttu

á 0 til að klára samsetta orðið og bæta við bili.
Ýttu tvisvar snöggt á # til að slökkva á flýtiritun í öllum

ritlum tækisins.