Snið
Veldu
Valmynd
>
Verkfæri
>
Snið
.
Þú getur stillt og sérsniðið hringitóna, viðvörunartóna og
aðra tóna tækisins fyrir mismunandi viðburði, umhverfi og
viðmælendahópa. Það snið sem er í notkun hverju sinni
sést efst á skjánum í biðstöðu. Ef sniðið Almennt er í
notkun birtist aðeins dagsetningin.
Til að búa til nýtt snið skaltu velja
Valkostir
>
Búa til
nýtt
og tilgreina stillingarnar.
Til að laga snið að þínum þörfum velurðu sniðið og svo
Valkostir
>
Sérsníða
.
Til að breyta sniði velurðu sniðið og svo
Valkostir
>
Gera
virkt
. Ótengda sniðið hindrar þig í að kveikja óvart á
tækinu, senda eða taka á móti skilaboðum, nota þráðlaust
staðarnet, Bluetooth eða FM-útvarp. Það lokar einnig
öllum þeim internettengingum sem eru virkar þegar
sniðið er valið. Ótengda sniðið kemur ekki í veg fyrir að
nýjum þráðlausum staðarnetstengingum eða Bluetooth-
tengingum sé komið á seinna eða að FM-útvarp sé
endurræst. Fylgdu því viðeigandi öryggisráðstöfunum
þegar þú notar þessa möguleika.
Til að eyða sniði sem þú hefur búið til velurðu
Valkostir
>
Eyða sniði
. Þú getur ekki eytt forstilltu sniðunum.