Nokia E51 - Sérstillingar sniða

background image

Sérstillingar sniða

Veldu

Valkostir

>

Sérsníða

og skilgreindu eftirfarandi:

Hringitónn

— Veldu hringitón af listanum eða veldu

Sækja tóna

til að opna bókamerkjamöppu með lista

23

background image

yfir bókamerki til að hlaða niður hringitóna í vafranum.

Ef þú ert með tvær símalínur getur þú notað

mismunandi hringitón fyrir hvora línu.

Hringitónn myndsímt.

— Veldu hringitón fyrir

myndsímtöl.

Segja nafn hringj.

— Ef þetta er valið og einhver á

tengiliðalistanum hringir í þig heyrist hringitónn í

símanum sem er sambland af upplestri á nafni

tengiliðarins og hringitóninum sem þú valdir.

Gerð hringingar

— Veldu hvernig hringitónninn á að

heyrast.

Hljóðst. hringingar

— Stilltu hljóðstyrk hringitónsins.

Viðv.tónn skilaboða

— Veldu tón fyrir móttekin

textaskilaboð.

Viðv.tónn tölvupósts

— Veldu tón fyrir móttekin

tölvupóstskeyti.

Viðv.tónn spjalls

— Veldu tón fyrir móttekin

spjallboð.

Varar við með titringi

— Veldu hvort tækið á að titra

þegar hringt er í þig.

Takkatónar

— Stilltu hljóðstyrk takkatóna tækisins.

Aðvörunartónar

— Kveiktu eða slökktu á

viðvörunartónum. Þessi stillingar hefur einnig áhrif á

tóna í sumum leikjum og Java-forritum.

Gera viðvart um

— Þú getur stillt tækið þannig að það

hringi aðeins þegar um er að ræða símanúmer í

ákveðnum viðmælendahópi. Enginn hringitónn heyrist

ef fólk utan þess hóps hringir.

Nafn sniðs

— Þú getur búið til nýtt snið og gefið því

heiti eða endurnefnt snið sem þegar er til. Sniðunum

Almennt og Ótengt er ekki hægt að gefa annað heiti.