Minniskorti komið fyrir
Notaðu minniskort til að spara minni tækisins. Einnig er
hægt að taka afrit af upplýsingunum í tækinu og vista þær
á minniskortinu.
Ekki er víst að sölupakkning tækisins innihaldi minniskort.
Hægt er að fá minniskort sem aukahlut.
1. Snúðu tækinu þannig að bakhliðin snúi að þér, ýttu á
sleppitakkann (1) og renndu bakhliðinni af (2).
2. Settu minniskortið inn í raufina með snertiflötinn á
undan. Gakktu úr skugga um að snerturnar snúi að
tengjum tækisins.
3. Ýttu kortinu inn þar til það smellur á sinn stað.
4. Settu bakhliðina á.