Nokia E51 - Flutningur

background image

Flutningur

Veldu

Valmynd

>

Verkfæri

>

Símaflutn.

.

Þú getur flutt efni, eins og tengiliði, úr samhæfu Nokia

tæki í nýja Nokia Eseries tækið þitt með Bluetooth-

tengingu eða innrauðri tengingu. Það hvaða efni er hægt

að flytja fer eftir gerð tækisins. Þú getur einnig samstillt

gögn milli tækjanna eða sent gögn úr þessu tæki í hitt

tækið ef hitt tækið styður samstillingu.
Þegar þú flytur gögn úr eldra tæki kann það að fara fram

á að þú setjir SIM-kort í það. Ekki er nauðsynlegt að SIM-

kort sé í Eseries tækinu þegar gögn eru flutt.
Efnið er afritað úr minni hins tækisins og sett á viðeigandi

stað á tækinu þínu. Afritunartíminn veltur á því

gagnamagni sem er afritað. Þú getur hætt við afritunina

og haldið henni áfram síðar.
Nauðsynlegar aðgerðir fyrir gagnaflutning geta verið

breytilegar eftir tækjum, og því hvort þú hafir hætt við

gagnaflutning áður. Þeir hlutir sem hægt er að flytja geta

verið mismunandi eftir hinu tækinu.