Upptökustillingar
Upptökur eru sjálfkrafa vistaðar í minni tækisins nema þú
hafir breytt sjálfgefnu staðsetningunni. Þetta hefur áhrif á
þær upptökur sem þú býrð til eða tekur við eftir að þú
breytir stillingunum.
Sjálfgefinni staðsetningu vistaðra upptaka er breytt með
því að velja
Valkostir
>
Stillingar
>
Minni í notkun
.
Upptökugæði eru valin með því að velja
Valkostir
>
Stillingar
>
Upptökugæði
. Ef þú velur
Há
er hljóðskráin
sem þú tókstu upp á .wav-skráarsniði (waveform) og
hámarkslengd skráarinnar er 60 mínútur. Ef þú velur
MMS
samhæft
er hljóðskráin sem þú tókstu upp á .amr-
skráarsniði (adaptive multirate) og hámarkslengd
skráarinnar er ein mínúta.