Spjallstillingar tilgreindar
Veldu
Valkostir
>
Stillingar
>
Spjallstillingar
til að
tilgreina stillingar spjallforritsins. Meðal annars er hægt að
velja skjánafn og tóna fyrir spjall.
Þú þarft að skrá þig inn á spjallmiðlara áður en þú getur
spjallað við annan notanda eða notendur, sem og til að
skoða og breyta spjallnotendunum þínum. Til að bæta við
spjallmiðlara velurðu
Valkostir
>
Stillingar
>
Miðlarar
. Réttar stillingar fást hjá þjónustuveitunni. Til að
stilla miðlarann þannig að tækið skrái sig sjálfkrafa inn á
hann velurðu
Valkostir
>
Stillingar
>
Sjálfgefinn
miðlari
.
Til að tilgreina hvernig tækið tengist við spjallmiðlarann
velurðu
Valkostir
>
Stillingar
>
Gerð innskr. á spjall
.
Til að koma sjálfkrafa á tengingu á milli tækisins og
sjálfgefna miðlarans velurðu
Sjálfvirk
. Til að koma
tengingunni aðeins á sjálfkrafa í heimanetinu velurðu
Sj.
á heimasímk.
. Til að tengjast við miðlarann þegar
spjallforritið er opnað velurðu
Við ræs. forrits
. Til að
koma á tengingu við miðlarann handvirkt velurðu
Handvirk
og skráir þig inn á miðlarann á aðalskjá
spjallsins með því að velja
Valkostir
>
Innskráning
.
Sláðu inn notandakenni og lykilorð þegar beðið er um það.
Þú getur fengið notandanafnið, lykilorðið og aðrar
stillingar fyrir innskráningu frá þjónustuveitunni þinni
þegar þú skráir þig fyrir þjónustunni.