
Myndskeið og straumspilun
Viðvörun: Ekki skal halda tækinu nálægt eyranu
þegar hátalarinn er notaður því hljóðstyrkur getur verið
mjög mikill.
Til að spila myndskeið eða hljóðskrá velurðu
Valkostir
>
Opna
>
Nýjustu skrár
til að spila eitt af þeim sex
myndskeiðum sem þú spilaðir síðast eða
Vistaða skrá
til
að spila myndskeið eða opna tengil. Veldu
Spila
.
Til að straumspila efni skaltu velja tengil sem vísar í hljóð-
eða myndskrá og velja
Spila
; eða tengjast við internetið,
fletta að myndskeiði eða hljóðskrá og velja
Spila
.
RealPlayer þekkir tvær gerðir tengla: rtsp:// og http://
slóðir sem vísa í RAM-skrá. Áður en straumspilun efnisins
71

hefst þarf tækið þitt að tengjast vefsetri og vista efnið í
biðminni. Ef vandamál við tengingu valda villu í spilun
reynir RealPlayer sjálfkrafa að tengjast aftur við
netaðgangsstaðinn.
Notaðu hljóðstyrkstakkana til að stilla hljóðstyrkinn
meðan á spilun stendur.
Til að spóla áfram á meðan spilað er skaltu fletta upp og
halda inni takkanum. Til að spóla til baka á meðan spilað
er skaltu fletta niður og halda inni takkanum.
Til að stöðva spilun eða straumspilun skaltu velja
Stöðva
. Ef vistun í biðminni eða tenging við
straumspilunarstað stöðvast stöðvast sömuleiðis spilun
skrárinnar og hún hefst aftur frá byrjun.
Til að hlaða myndskeiðum niður af vefnum velurðu
Valkostir
>
Sækja hreyfimyndir
.
Til að skoða myndskeiðið í fullri skjástærð velurðu
Valkostir
>
Spila á öllum skjá
. Full skjástærð eykur
stærð hreyfimyndarinnar þannig að hún nær yfir eins
stóran hluta af skjánum án þess að skekkja sniðhlutfallið.
Ábending: Til að skipta á milli venjulegs skjás og
alls skjásins á fljótlegan hátt ýtirðu á 2 á
takkaborðinu.