Myndataka
Tækið styður allt að 1600x1200 punkta myndupplausn við
myndatöku. Myndupplausnin í þessari handbók getur virst
önnur.
Notaðu skjáinn sem myndglugga til að taka mynd, beindu
myndavélinni að myndefninu og ýttu á skruntakkann.
Tækið vistar myndina í sjálfgefnu möppunni eða í möppu
sem þú hefur valið.
Ábending: Flettu upp eða niður til þess að stækka
eða minnka mynd áður en þú tekur hana.
Ef þú vilt ekki vista myndina sem þú tókst skaltu velja
Valkostir
>
Eyða
. Veldu
Til baka
til að fara aftur í
myndgluggann og taka aðra mynd. Veldu
Valkostir
>
Opna Gallerí
til að skoða myndina í Galleríinu.
Ef birtan er lítil, veldu
Valkostir
>
Næturstilling
áður en
mynd er tekin.
Til að stilla myndgæðin velurðu
Valkostir
>
Stilla
>
Ljósgjafi
eða
Litáferð
.
Til þess að taka nokkrar myndir í röð velurðu
Valkostir
>
Myndaröð
. Myndavélin tekur þá sex myndir í röð.
Fyrir tímastillta myndatöku velurðu
Valkostir
>
Sjálfvirk
myndataka
, veldu tímann sem vilt og ýttu á
Virkja
.
Myndavélin tekur mynd eftir að tíminn er liðinn.
Ábending: Til að fá aðgang að ýmsum
myndavélarstillingum með fljótlegum hætti
velurðu
Valkostir
>
Sýna tækjastiku
.
Til að skoða myndir skaltu velja
Valmynd
>
Miðlar
>
Gallerí
>
Myndir
.