Nokia E51 - Kort

background image

Kort

Veldu

Valmynd

>

Verkfæri

>

Kort

.

Með kortaforritinu geturðu séð staðsetningu þína á korti,

skoðað kort fyrir ýmsar borgir og lönd, leitað að

heimilisföngum og áhugaverðum stöðum, gert

leiðaráætlanir milli staða og vistað staðsetningar og sent

þær í samhæf tæki. Einnig er hægt að kaupa leyfi fyrir

viðbótarþjónustur eins og ferðahandbækur,

umferðarupplýsingar og leiðsagnarþjónustu með

raddleiðsögn. Slíkar þjónustur er ekki í boði í öllum

löndum eða svæðum.
Ef þú ferð á svæði sem er utan þeirra korta sem þú hefur

þegar hlaðið niður í tækið er korti fyrir svæðið sjálfvirkt

hlaðið niður í gegnum internetið. Einhver kort kunna að

vera til staðar í tækinu eða á minniskortinu. Einnig er hægt

að nota tölvuhugbúnaðinn Nokia Map Loader til að hlaða

hlaða niður kortum. Til að setja Nokia Map Loader upp í

samhæfri tölvu skaltu fara á www.maps.nokia.com.

Niðurhal á kortum getur falið í sér stórar gagnasendingar

um símkerfi þjónustuveitunnar. Upplýsingar um

gagnaflutningsgjöld fást hjá þjónustuveitum.
Þegar þú notar Kort í fyrsta skipti gætirðu þurft að velja

farsíma- eða WLAN-aðgangsstað til að geta hlaðið niður

kortum. Hægt er að breyta aðgangsstaðnum seinna með

því að velja

Valkostir

>

Verkfæri

>

Stillingar

>

Internet

>

Sjálfg. aðgangsstaður

.