Kallkerfinu lokað
Slökkt er á kallkerfinu með því að velja
Valkostir
>
Hætta
. Veldu
Já
til að skrá þig út og loka þjónustunni.
Veldu
Nei
ef þú vilt halda forritinu virku í bakgrunni.
81
Um GPS og
gervihnattamerki
GPS (Global Positioning System) er þráðlaust
leiðsagnarkerfi sem nær yfir allan hnöttinn og
samanstendur af 24 gervitunglum og jarðstöðvum sem
vakta þau. Til að nota GPS þarftu samhæfan GPS-
móttakara. Notaðu Bluetooth-tenginguna til að tengjast
við GPS-móttakarann. Til að hefja notkun á samhæfum
GPS-móttakara með Bluetooth-tengingu velurðu
Tengingar
>
Bluetooth
.
GPS-móttakari tekur við útvarpsmerkjum af litlum styrk frá
gervihnöttum og mælir ferðatíma merkjanna. GPS-
móttökutækið getur svo notað ferðatímann til að reikna
staðsetningu sína með nokkurra metra nákvæmni.
Punktarnir í GPS-tækinu eru gefnir upp í gráðum og broti
úr gráðum og notað er alþjóðlega WGS-84 hnitakerfið.
GPS-kerfið (Global Positioning System) er rekið af
Bandaríkjastjórn sem ber alla ábyrgð á nákvæmni þess og
viðhaldi. Nákvæmni staðsetningargagna kann að verða
fyrir áhrifum af breytingum á GPS-gervihnöttum sem
gerðar eru af Bandaríkjastjórn og kann að breytast í
samræmi við stefnu varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna
um borgaralegt GPS og alríkisáætlun um þráðlausa
leiðsögu. Slæm rúmfræði gervihnatta getur einnig haft
áhrif á nákvæmni. Staðsetning, byggingar, náttúrulegar
hindranir auk veðurskilyrða kunna að hafa áhrif á móttöku
og gæði GPS-merkja. Aðeins ætti að nota GPS-
móttakarann utanhúss til að taka á móti GPS-merkjum.
Ekki ætti að nota GPS fyrir nákvæmar
staðsetningarmælingar og aldrei ætti að treysta eingöngu
á staðsetningargögn frá GPS-móttakaranum og símkerfi
fyrir staðsetningu eða leiðsögn.
Áreiðanleiki áfangamælisins er ekki fullkominn og
sléttunarvillur eru mögulegar. Nákvæmnin veltur einnig á
móttöku og gæðum GPS-merkja.
Til að gera mismunandi staðsetningaraðferðir virkar eða
óvirkar, líkt og Bluetooth GPS, skaltu velja
Valmynd
>
Verkfæri
>
Stillingar
>
Almennar
>
Staðsetning
>
Staðsetningaraðferðir
.