Kallkerfi
Veldu
Valmynd
>
Tengingar
>
Kallkerfi
.
Kallkerfi (PTT, sérþjónusta) gefur beint talsamband með
því að ýta á takka. Með kallkerfi er hægt að nota tækið á
sama hátt og labbrabbtæki.
Þú getur notað kallkerfi til að tala við einn viðmælanda
eða hóp fólks eða til að tengjast rás. Rás er eins og
spjallrás: þú getur hringt í rásina til að sjá hvort einhver sé
tengdur. Hringingin í rásina heyrist ekki hjá öðrum
notendum; notendurnir tengjast bara rásinni og byrja að
tala saman.
Í kallkerfissamskiptum talar einn á meðan hinir hlusta í
innbyggða hátalaranum. Notendur skiptast á um að svara.
Þar sem aðeins einn notandi getur talað í einu er tíminn
sem hægt er að tala í einu takmarkaður. Upplýsingar um
hversu lengi hægt er að tala í einu fást hjá
þjónustuveitunni.