Nokia E51 - Sérþjónusta

background image

Sérþjónusta

Til að hægt sé að nota tækið verða notendur að vera

áskrifendur þjónustu fyrir þráðlausa síma. Margir af

valkostum símans flokkast undir sérþjónustu. Ekki er hægt

að nota þessa valkosti í öllum símkerfum. Í öðrum

símkerfum kann jafnframt að vera farið fram á sérstaka

skráningu fyrir þessari þjónustu. Notkun netþjónustu felur

í sér sendingu gagna. Fáðu upplýsingar hjá þjónustuveitu

þinni um gjöld á heimaneti þínu og þegar reiki er notað á

öðrum netum. Leiðbeiningar ásamt upplýsingum um gjald

fyrir þjónustuna fást hjá þjónustuveitu. Sum símkerfi

kunna að hafa takmarkanir sem hafa áhrif á hvernig hægt

er að nota sérþjónustu. Sum símkerfi styðja t.d. ekki alla

séríslenska bókstafi og þjónustu.
Þjónustuveitan kann að hafa beðið um að tilteknar

aðgerðir væru hafðar óvirkar eða ekki gerðar virkar í

tækinu. Ef svo er birtast þær ekki í valmynd tækisins. Tækið

kann einnig að hafa verið sérstillt, t.d. kann heitum, röð

og táknum valmynda að hafa verið breytt. Þjónustuveitan

gefur nánari upplýsingar.
Þetta tæki styður WAP 2.0 samskiptareglur (HTTP og SSL)

sem keyra á TCP/IP samskiptareglum. Sumar aðgerðir

þessa tækis, svo sem tölvupóstur, vefskoðun og

margmiðlunarskilaboð (MMS), krefjast símkerfisstuðnings

við þessa tækni.