Traustsstillingar vottorða
Það að vottorði sé treyst þýðir að þú heimilar því að
sannvotta vefsíður, póstþjóna, hugbúnaðarpakka og
önnur gögn. Nota verður áreiðanleg vottorð til að
sannvotta þjónustu og hugbúnað.
Mikilvægt: Þó að notkun vottorða dragi verulega
úr þeirri áhættu sem fylgir fjartengingum og uppsetningu
hugbúnaðar verður að nota þau rétt svo að aukið öryggi
fáist. Tilvist vottorðs er engin vörn ein og sér.
Vottorðastjórinn verður að vera með rétt, sannvottuð eða
tryggileg vottorð svo að aukið öryggi fáist. Vottorð eru
bundin tilteknum tíma. Ef textinn „Útrunnið vottorð“ eða
„Vottorðið hefur enn ekki tekið gildi“ birtist þó svo að
vottorðið ætti að vera gilt skal athuga hvort rétt dag- og
tímasetning sé í tækinu.
Áður en vottorðsstillingum er breytt þarf að ganga úr
skugga um að örugglega megi treysta eiganda þess og að
það tilheyri í raun eigandanum sem tilgreindur er.
Til að breyta traustsstillingum velurðu vottorð og
Valkostir
>
Trauststillingar
. Veldu forritasvæði og ýttu
á skruntakkann til að velja
Já
eða
Nei
. Ekki er hægt að
breyta traustsstillingum einkavottorðs.
Allt eftir því hvaða vottorð er valið birtist listi yfir forritin
sem geta notað það:
•
Symbian-uppsetning
— Nýtt forrit fyrir Symbian
stýrikerfi.
•
Internet
— Tölvupóstur og grafík.
•
Uppsetning forrita
— Nýtt Java™ forrit.
•
Könnun vott. á Neti
— Online certificate status
protocol.