Nokia E51 - Vottorðastjórnun

background image

Vottorðastjórnun

Veldu

Valmynd

>

Verkfæri

>

Stillingar

>

Almennar

>

Öryggi

>

Vottorðastjórnun

.

Stafræn vottorð eru notuð til að staðfesta uppruna

hugbúnaðar en tryggja ekki öryggi. Um fjórar tegundir

vottorða er að ræða: heimildavottorð, einkavottorð,

vottorð traustra síðna og tækjavottorð. Ef tengingin er

örugg getur verið að miðlari sendi vottorð í tækið. Þegar

vottorðið er móttekið er það sannvottað af

heimildavottorði sem er vistað í tækinu. Látið er vita ef

uppruni miðlarans er ekki staðfestur eða ef ekki er rétt

vottorð í símanum.
Hægt er að hlaða vottorði niður af vefsvæði, fá það sem

viðhengi í tölvupósti eða sem skilaboð með Bluetooth eða

innrauðri tengingu. Nota ætti vottorð þegar senda á

trúnaðarupplýsingar til netbanka eða miðlara. Einnig ætti

að nota þau til að minnka hættuna á vírusum eða öðrum

skaðlegum hugbúnaði og tryggja áreiðanleika

hugbúnaðar sem hlaðið er niður af netinu og settur upp í

tækinu.

100

background image

Ábending: Þegar nýju vottorði er bætt við skal

sannvotta uppruna þess.