Fjarstillingar
Veldu
Valmynd
>
Verkfæri
>
Stj. tækis
.
Með stjórnanda tækis er hægt að stjórna stillingum,
gögnum og hugbúnaði í tækinu úr fjarlægð.
Þú getur tengst miðlara og fengið sendar stillingar fyrir
tækið þitt. Þú getur fengið miðlarasnið og mismunandi
stillingar frá þjónustuveitunni þinni eða upplýsingadeild.
Stillingarnar kunna að innihalda tengistillingar og aðrar
stillingar fyrir mismunandi forrit í tækinu. Mismunandi
getur verið hvaða valkostir eru í boði.
Fjarstillingartengingin er venjulega ræst af miðlaranum
þegar uppfæra þarf stillingar tækisins.
Til að búa til nýtt miðlarasnið skaltu velja
Valkostir
>
Nýtt snið miðlara
.
Þú færð e.t.v. þessar stillingar frá þjónustuveitanda þínum
í stillingarboðum. Ef ekki skaltu skilgreina eftirfarandi:
•
Nafn miðlara
— Færðu inn heiti stillingamiðlarans.
•
Auðkenn.nr. netþjóns
— Færðu inn auðkenni
stillingamiðlarans.
•
Lykilorð miðlara
— Sláðu inn lykilorð til að miðlarinn
beri kennsl á tækið þitt.
•
Tegund tengingar
— Veldu tegund tengingar.
•
Aðgangsstaður
— Veldu aðgangsstað sem nota á með
tengingunni, eða búðu til nýjan aðgangsstað. Þú getur
einnig valið að beðið sé um aðgangsstað í hvert sinn
sem þú tengist.
•
Heimaveffang
— Færðu inn veffang
stillingamiðlarans.
102
•
Gátt
— Færðu inn gáttarnúmer miðlarans.
•
Notandanafn
— Sláðu inn notandakennið þitt fyrir
stillingamiðlarann.
•
Lykilorð
— Færðu inn lykilorðið þitt fyrir
stillingamiðlarann.
•
Leyfa stillingar
— Veldu
Já
til að leyfa miðlaranum að
hefja stillingalotu.
•
Samþ. allar sjálfkrafa
— Veldu
Já
ef þú vilt ekki að
miðlarinn biðji þig um staðfestingu þegar hann hefur
stillingalotu.
•
Sannvottun símkerfis
— Veldu hvort nota á http-
sannvottun. Þessi stilling er aðeins í boði ef þú hefur
valið internetið sem gerð flutningsmáta.
•
Notandanafn símkerfis
— Sláðu inn notandakenni
þitt fyrir http-sannvottun. Þessi stilling er aðeins í boði
ef þú hefur valið internetið sem gerð flutningsmáta.
•
Lykilorð símkerfis
— Sláðu inn lykilorð þitt fyrir http-
sannvottun. Þessi stilling er aðeins í boði ef þú hefur
valið internetið sem gerð flutningsmáta.
Til að tengjast miðlaranum og taka við stillingum fyrir
tækið þitt velurðu
Valkostir
>
Hefja stillingu
.
Til að skoða stillingaskrá valins sniðs velurðu
Valkostir
>
Skoða notk.skrá
.