Fast númeraval
Veldu
Valmynd
>
Tengiliðir
>
Valkostir
>
SIM-
tengiliðir
>
Í föstu númeravali
.
Með föstu númeravali er hægt að takmarka símtöl úr
tækinu þannig að aðeins sé hægt að hringja í ákveðin
símanúmer. Það styðja ekki öll SIM-kort fast númeraval.
Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar.
Þegar fast númeraval er virkt kann að vera hægt að hringja
í opinbera neyðarnúmerið sem er forritað í tækið.
1. Til að takmarka símtöl úr tækinu velurðu
Valkostir
>
Nýr SIM-tengiliður
og slærð nafn og símanúmer
tengiliðarins inn í listann yfir númer sem hringja má í,
eða velur
Bæta í úr Tengiliðum
til að afrita tengiliðinn
úr Tengiliðir. Til að takmarka símtöl eftir landsnúmeri
skaltu færa landsnúmerið inn í númeralistann. Aðeins
er hægt að hringja í símanúmer sem byrja á þessu
landsnúmeri.
2. Veldu
Valkostir
>
Virkja fast nr.val
. Nauðsynlegt er
að hafa PIN2-númer til að kveikja og slökkva á föstu
númeravali og breyta tengiliðum í föstu númeravali.
Númerið fæst hjá þjónustuveitunni. Veldu
Valkostir
>
Óvirkja fast nr.val
til að slökkva á þjónustunni.
Ábending: Til að geta sent textaskilaboð til SIM-
tengiliða í föstu númeravali þarftu einnig að bæta
númeri skilaboðamiðstöðvarinnar við listann.